Norrænu tollvarðafélögin (NTO) funduðu 2. – 4. september sl. í Danmörku. Á fundinum var m.a. fjallað um mismunandi þróun í tollgæslu norrænu landanna. Ljóst er að stefna þeirra er að mörgu leiti ólík. Í Svíþjóð, sem og í Noregi hafa stjórnvöld t.a.m.aukið áherslu og fjárfestingar í tollgæslunni þar. Í Danmörku blasir hins vegar við umfangsmikil fækkun tollvarða og annara innan skattsins.
Í ljósi vaxandi óstöðugleika í heiminum, breyttrar og ótryggrar alþjóðlegrar öryggisógnar, þar sem m.a. skipulögð glæpastarfsemi á Norðurlöndum teygir anga sína yfir landamæri í ríkara mæli en áður, er slík fækkun tollvarða algerlega óásættanleg.
Á fundinum var samþykkt sameiginleg yfirlýsing félaganna þar sem danska ríkið var m.a. hvatt til að endurskoða fyrirhugaðan fjárlaganiðurskurð. Yfirlýsingin er jafnframt skýr áminning til hinna norrænu ríkjanna um að nauðsynlegt sé að halda áfram að tryggja landamæraöryggi með fullnægjandi fjármögnun og mannafla. Samfélagið hefur einfaldlega ekki efni á því að tollgæsla við landamæri verði ekki í stakk búin til að sinna grundvallarhlutverki sínu.
Samhliða þessu er bent á nýja heimasíðu norrænu tollvarðafélagana: Home | NordicCustoms
Yfirlýsingin:
http://tollverdir.is/wp-content/uploads/2025/09/Sameiginleg-yfirlysing-NTO-2025-a-ensku.pdf