Ferðaávísun – Frímann kerfið
– Hafir þú áhuga á að kynna þér ferðaávísanir þá ferð þú á Orlofshúsavef TFÍ- https://orlof.is/tfi/ og velur flipann „FERÐAÁVÍSUN“ (innskráning með rafrænum skilríkjum) og „Kaupa ferðaávísun“ þar sem hægt er að velja upphæð ávísunarinnar. Ferðaávísunin rennur aldrei út og þú getur notað hana hjá hvaða samstarfsaðila okkar sem er. Þegar þú ætlar síðan að nota ferðaávísunina þá þarf að hafa samband í gegnum síma eða tölvupóst við þau hótel sem eru talin upp í „Gisting í boði“ og bóka.
– Félagsmaður getur keypt ferðaávísun sem veitir honum aðgang að hótelum og gistiheimilum um allt land.
Ath! Búið er að semja við tugi gististaða víðsvegar um landið að bjóða félagsmönnum okkar allra bestu kjörin.
Gjafabréf Icelandair að andvirði 25.000 kr. Verð til félagsmanna 18.000 kr.
– Hver félagsmaður á rétt á kaupum á 4 gjafabréfum á ári.
Útilegukortið að andvirði 19.900 kr. Verð til félagsmanna 16.000 kr.
– Hver félagsmaður á rétt á kaupum á einu korti á ári.
Nánar um Útilegukortið – http://utilegukortid.is/
Veiðikortið að andvirði 8.900 kr. Verð til félagsmanna 6.000 kr.
– Hver félagsmaður á rétt á kaupum á einu korti á ári.
Nánar um Veiðikortið – http://veidikortid.is/is/
Sérstakur orlofsstyrkur TFÍ
Orlofssjóður TFÍ veitir félagsmönnum styrk til greiðslu á orlofstengdum gistikostnaði. Hver félagsmaður á rétt á einni úthlutun hvert ár og er hámarksstyrkur 40.000 kr. Félagsmaður þarf að hafa greitt til félagsins í a.m.k. 6 mánuði til að eiga rétt á greiðslu úr sjóðnum.
Ath! Ekki er veittur styrkur á þjónustu sem TFÍ eða önnur stéttarfélög bjóða félögum sínum.
Styrkir eru veittir fyrir eftirfarandi kostnaði:
Gistingu innan- og utanlands (utan orlofshúsa félagsins), þ.e. hótel, gistihús, tjaldstæði o.þ.h.
Leigu á hjólhýsi, fellihýsi og tjaldvagni
Hvers konar samsettum ferðum þar sem gisting er innifalin
Umsækjendur verða að framvísa löglegum reikningi/kvittun stílað á nafn og kennitölu félagsmanns sem sækir um. Styrkur er veittur eftir á og leitast verður við að greiða þá út svo fljótt sem auðið er. Umsóknum skal skilað í tölvupósti á netfangið jon.g.ragnarsson@skatturinn.is þar sem fram kemur tilefni umsóknar ásamt viðhengi af reikningi/kvittun.