![malla-kvc3b6dd-eftir-32-c3a1ra-starf malla-kvc3b6dd-eftir-32-c3a1ra-starf](https://tollverdir.is/cache/10__320x240_malla-kvc3b6dd-eftir-32-c3a1ra-starf.jpg)
Fimmtudaginn 13. desember var Málfríður Freyja Arnórsdóttir kvödd með kaffisamsæti í Tollhúsinu eftir rúm 32 ár í starfi sem tollvörður. Málfríður gegndi hinum ýmsu störfum innan tollgæslunnar, lengst af á Keflavíkurflugvelli og nú síðast sem tollsérfræðingur í endurskoðunardeild Tollstjóra Tollhúsinu við Tryggvagötu. Af þessu tilefni afhenti Guðbjörn Guðbjörnsson, deildarstjóri endurskoðunardeildar, henni gjöf sem þakklætisvott fyrir störf hennar.